-
Fylgstu með mataræðinu
Matardagbókin auðveldar þér að halda utan um mataræðið. Einnig er gagnagrunnurinn okkar með fullt af uppskriftum með leiðbeiningum og næringarupplýsingum.
-
Fylgdu æfingakerfi
Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn ættir þú að geta fundið æfingaplan sem hentar þér. Einnig bjóðum við upp á heimaæfingar fyrir þá sem vilja æfa heima eða hafa lítinn tíma.
-
Mældu þig reglulega
Skráðu þyngdina þína, líkamsmælingar, BMI stuðul, mælingar og fleira í mælingakerfið. Berðu saman mælingar og myndir sjáðu árangurinn myndrænt.
-
Náðu árangri
Að halda matardagbók og æfingadagbók hjálpar þér að halda þér við efnið. Þú verður meðvitaðri um hvað þú lætur ofan í þig og það verður erfitt að fara aftur í gamla farið þegar þú sérð raunverulegan árangur.
Fitbook breytti mínum lífsstíl.
Alveg frábært líka hvað vefsíðan er einföld og þæginleg í notkun. Ég mun áfram treysta á Fitbook til að viðhalda heilbrigðum lífsstíl.
Hanna Rún
Íslandsmeistari í Gæðingaskeiði
Flottar tilbúnar mataráætlanir!
Þetta er frábær síða til að hjálpa fólki að ná tökum á matarræðinu sínu. Ég mæli klárlega með Fitbook!
Guðrún Sigríður
2. sæti í Átakskeppni Fitbook 2012
Sigurður missti 18 kg - Átakskeppni Fitbook 2012
Vil bara byrja á því að þakka Fitbook kærlega fyrir þetta framtak! Ég var orðinn alveg ferlega þungur og leið bara virkilega illa. Það var erfitt að leika við krakkana á gólfinu, maður hafði ekkert úthald úti að leika og maður svitnaði meira en góðu hófi gegnir. Konan mín benti mér á þessa keppni og ég ákvað strax að ég skildi láta slag standa og ekkert kjaftæði. Og frá því að ég skráði mig hef ég stundað líkamsræktina að meðaltali 6 sinnum í viku, mataræðið var tekið í gegn. Öll óhollusta hreinsuð útaf heimilinu og einungis keypt góður og hollur matur inn. Og samfara því þá fóru allir hinir að borða hollt líka, svo allir voru að græða. Yfir þessar 12 vikur var ég léttastur 94 kíló, en ég fór í mælingu og þá sá ég að ég var að brenna rosalega mikið af vöðvum, síðustu 4 vikurnar breytti ég til í lyftingaprógrami og bætti á mig 5 kílóum af vöðvum en ekki grammi af fitu. Ekkert nema hamingja þar á ferð. Og núna í dag líður mér bara virkilega vel, og ég hlakka bara til að fara með krakkana í sund. Annað en fyrir 12 vikum síðan, þá forðaðist ég laugarnar. Fitbook er alveg hrikalega flottur vefur fyrir fólk sem vill taka á í heilsumálunum sínum. Ég notaði æfingaprógömin, notaði fyrst brennsluprógram og fór svo yfir í vöðvauppbyggingu, og um leið notaði ég margar uppskriftir í þessum fína gagnagrunni.
