Friðhelgi


Við munum ekki leigja, selja eða deila þínum persónuupplýsingum með þriðja aðila nema í þeim aðstæðum sem lýst er hér fyrir neðan. Ef þú vilt ekki að við notum eða miðlum þínum persónuupplýsingum eins og er lýst hér fyrir neðan mátt þú ekki nýta þér þjónustu Fitbook.

Við kunnum að birta og/eða deila þínum persónuupplýsingum til þriðja aðila til að: (a) til að uppfylla lagaleg skilyrði, svo sem lög, reglugerðir, leitarheimildir, stefnur eða dómsúrskurði (b) í sértökum tilvikum, þar sem þér eða öðrum gæti mögulega stafað hætta af, öryggi landsins ógnað, möguleg ógn við tölvukerfi okkar eða í þeim tilfellum þar sem við teljum að það þurfi að rannsaka eða koma í veg fyrir skaða, svik, misnotkun, ólöglega hegðun eða brot eða meint brot á þessum skilmálum eða öðrum samningi.

Við kunnum að deila samanlögðum lýðfræðilegum upplýsingum með samstarfsaðilum og augslýsendum til þess að koma með einstaklingsmiðaðar augýsingar. Þetta er ekki tengt við persónulegar upplýsingar sem gætu borið kennsl á einhvern einn einstakling.

Með því að slá inn mat í matardagbókina eða æfingar í æfingakerfið, gefur þú okkur leyfi til að greina næringarinnihald þess sem þú hefur innbyrt og æfingagetu þína. Þessar upplýsingar gera okkur kleift að búa til gröf af þyngd, mælingum, kaloríum og fleira. Við nýtum okkur þessar upplýsingar einnig til að koma með tillögur á mataræði og æfingum.

Þú samþykkir að skrá þig á póstlistann okkar, en þú getur afskráð þig hvenær sem er af póstlistanum okkar með því að fylgja leiðbeiningunum sem eru neðst í tölvupóstinum. Fréttabréfið okkar gerir okkur kleift okkur að segja þér frá nýjum vörum, tilboðum og fleira.

Við notum "log" skrár, "IP" tölur og utanaðkomandi þjónustur til að safna saman og greina heimsóknir á vefinn okkar og verslunarmynstur. Ekkert af þessu skilgreinir gesti okkar persónulega. Þetta er aðeins notað til að hjálpa okkur að skilja betur árangur okkur í auglýsingum, hvernig þú notar vefinn og hvernig við getum mögulega bætt hann til að auka þína ánægju.

Við notum vefkökur (cookies) til að auðkenna þig þegar þú kemur aftur á vefinn til að þú getir fengið viðeigandi upplýsingar sjálfkrafa. Þær gera okkur einnig kleift að fylgjast með áhuga notenda á mismunandi stöðum vefsins og þær upplýsingar getum við svo nýtt okkur til að gera vefinn áhugaverðari. Við setjum ekki persónulegar upplýsingar í vefkökurnar.

Þegar þú notar okkar þjónustu og gefur upp persónulegar upplýsingar, þá samþykkir þú að við söfnum þessum upplýsingum saman í samræmi við lög um meðferð persónuupplýsinga. Ef við ákveðum að breyta þessum skilmálum/stefnu okkar á einhvern hátt munu þær breytingar birtast hér.



  1. Fylgstu með mataræðinu á auðveldan hátt

  1. Fjölbreytt úrval af matarplönum

  1. Mikið úrval æfingakerfa

  1. Hundruð hollra uppskrifta
Einkaþjálfarar - Smelltu hér til að sjá hvernig þú getur notað Fitbook fyrir þína viðskiptavini